19.11.2011 | 17:16
Ég verð því miður, að Kjósa Steingrím Aftur!
Það er augljóst eftir þennann landsfund að áherslur hafa ekkert breyst.
Það er enn stefnt í sömu átt og fyrir hrun.
Þannig að ég sé mig enn knúinn til að Kjósa Steingrím Aftur.
|
Þjóðin horfir til Sjálfstæðisflokksins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


Athugasemdir
Þér er ekki viðbjargandi..
Laxinn, 19.11.2011 kl. 17:25
Verði þér að góðu.
Ragnar Gunnlaugsson, 19.11.2011 kl. 17:36
...endilega ,þó það nú væri ! eða hvað ?............
Ransy (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 18:12
Það væru mikil svik við sjálfan þig og samvisku þína og þar værir þú að hæðast að vitsmunum þínum og andlegu atgerfi. Vertu frekar frjáls og heiðarlegur, sannur og heill, og kjóstu Lilju Mósesdóttur.
Nýjir tímar.. (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 19:08
Lilja Mósesdóttir er heiðarlegur stjórnmálamaður sem stendur við orð sín og lætur sína samvisku ráða.
axel (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 20:41
Endilega kjóstu aftur Steingrím. Það er gott að vita hvað vitleysingarnir aðhyllast.
Eggert Guðmundsson, 19.11.2011 kl. 21:30
Heimskur, heimskari, heimskastur, hver af þessu ert þú?
guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 01:20
Aldrei aftur þetta vinstra ógeð!
Steingrímur slær skjaldborg um fjármagnseigendur og hefur svikið öll loforð. *Hrækituff*
Sigurpáll (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 01:29
Ef íhaldið kemst aftur til valda þá getum við aftur sagt bless við alla náttúruvernd og almenna skynsemi, eyðsla og óhóf kemst aftur í hámæli, segi því nei barnanna minna vegna.
Gísli (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 07:46
þrátt fyrir að vera skráður Sjálfstæðismaður og hafi kosið xD æði oft, þá vil ég mótmæla harðlega hverning þeir hafa falið vandamálin sem upp hafa komið undanfarið.
- Það er ekki hægt að keyra þjóðfélagið áfram á frekjunni í sérhagsmunahópum, eða miða allt stjórn landsins útfrá hagsmunum fárra fárra.
-Þegar stjórnendur landsins sjá ekki þau vandamál sem eru til staðar, og tilkynna þeim sem reyna að benda á að ekki sér ekki með feldu að fara í endurmentun. Þá mun vandamálið ekki verða leyst heldur mun það eingöngu aukast og verða að lokum ill-viðráðanlegt.
-Nú er að bjóða sig fram tveir frambjóðendur sem hafa báðir þá sögu að hafa logið allt illilega um stöðunna eins og hún var í raun og veru- Bjarni með stöðu Sjóvá og Hanna Birna með stöðunna á OR- ég segi bara Guð blessi Ísland ef þetta fólk kemst í áhrifastöðu í landstjórn.
-Eins og staðan er núna, þá er Steingrímur grýlan sem ég nota til að leggja áherslu á mitt mál: Sýnið að það sé traust og vammlaust fólk í sem býður sig fram til að stýra landinu. ef ekki,þá verð ég því miður að kjósa annað en xD.
Rúnar Ingi Guðjónsson, 20.11.2011 kl. 11:19
Góður Rúnar, allir aðrir en Bjarni og Sjáfstæðisflokkurinn er skárri kostur þó svo að ég vilji að allir núverandi flokkar fari út á hafsauga!
Sigurður Haraldsson, 20.11.2011 kl. 13:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.